Hafir þú ekki tíma fyrir hreyfingu í dag, skaltu ætla þér tíma fyrir heilsuleysi síðar meir!
búið spil..Jóhanna Björk Magnúsdóttir
Ætli ég eigi nokkurn tíman eftir að nenna að skrifa eitthvað meira hér inn... held að ég haldi mig bara við www.barnanet.is/haftorsson og kem með fréttir og myndir af okkur fjölskyldunni þar!LOKSINS!!Jóhanna Björk Magnúsdóttir
Ég veit nú bara ekki hvar ég á að byrja!
Vil nú bara þakka innilega fyrir allar fallegu kveðjurnar hér á blogginu og sms-in sem við erum búin að fá, ekkert smá gott og gaman að vita að svona margir hugsuðu til okkar![]()
erum búin að setja inn nokkrar myndir á barnanetssíðu www.barnanet.is/haftorsson
ætla að skrifa meira á eftir, þarf að sinna mömmuhlutverkinu aðeins!![]()
10.09.07Jóhanna Björk Magnúsdóttir
Þar sem heimsóknarfjöldin en komin langt yfir 100 í dag gat ég ekki annað en komið með eina færslu handa ykkur...Allt fínt að frétta af okkur svosem... fór í skoðun í morgun og það var nú bara minna að gerast í dag en á föstudaginn! þannig að það stefnir allt í að ég verði sett af stað annað kvöld, eða þá á ég að fá einhvern stíl og svo mallar þetta í gang á miðvikudeginum, þannig að 12.sept er líklega stóri dagurinn!
Það var reyndar hreyft við belgnum í morgun þannig að það er enn von um að þetta fari af stað af sjálfu sér.. er svona að vona það allavega!! 11.sept er reyndar engin óska dagur en ég er sko alveg til í að þessu fari að ljúka bara sem fyrst
en ætli maður fari ekki bara að hvíla sig fyrir komandi átök, læt kannski heyra í mér á morgun ef ekkert gerist í nótt! PLÍS viljiði senda mér alla þá orku sem þið eigið!!
Kv. Jóa sem er aaaaalveg að verða MÓÐIR!!
07.07.09Jóhanna Björk Magnúsdóttir
og ekkert barn ennþá...fórum í skoðun í morgun og ég fór í svona rit til að athuga hvernig barnið hefði það og hvort það væru einhverjir samdrættir, það voru einhverjir smá samdrættir þannig að þetta á örugglega eftir að koma á næstu dögum. Ég fann svosem ekkert fyrir þeim en hún sagði að það væri allavega eitthvað í gangi... vona að hún hafi ekki logið að mér kéllingin! Ég hef allavega tíma þangað til á þriðjudagskvöld til að fæða en annars verð ég sett af stað þá... og því nenni ég nú ekkert! Beibíið hefur það greinilega bara einum of gott þarna í mallanum
...svo vil ég óska Söndru Björk og Hjalta til hamingju með strákinn sem kom í heiminn í gærkvöldi, hann var greinilega eitthvað aðeins að flýta sér því hann átti ekkert að fæðast fyrr en 29.sept, mér finnst þetta vera smá svindl!! ...neinei ég er ekkert SVO öfundsjúk...
annars vona ég bara að þið eigið góða helgi og næst þegar ég skrifa hér inn skal ég vera búin að eiga, lofa því!!
6.september!!Jóhanna Björk Magnúsdóttir
ég var búin að ákveða að þetta yrði dagurinn fyrst hinn fór fyrir lítið en neinei þetta er nú meiri óþekktin í þessu krakkarassgati! bara ekkert að gerast og maður er bara eins og vitleysingur að bíða og bíða og veit ekkert eftir hverju maður á að bíða hehehég er allavega búin að sitja sveitt hér í morgun að setja inn myndir sem við Ragga erum búnar að vera að leika okkur að taka í biðinni, við fórum í fjallgöngu í gær og tókum nokkrar myndir... gangan átti SKO að koma þessu af stað en það gerði það auðvitað ekki... þannig að þið verðið bara að láta myndir af mér duga þangað til barnið vill sýna sig
04.09.07Jóhanna Björk Magnúsdóttir
...neibb ekkert að gerast hér!ætla að skella mér á einn fótboltaleik núna og athuga hvort ég æsist ekki öll upp og fari af stað
03.09.07Jóhanna Björk Magnúsdóttir
nei það komu sko engir verkir í dag... er bara búin að vera svo rosa upptekin í dag við að gera EKKERT að ég gleymdi alveg að láta ykkur vitafór í skoðun á norðfjörð í dag og það er bara allt í góðu lagi með okkur... á svo að fara aftur á föstudaginn í monitor ef ég verð ekki búin að eiga þá, ég sagði henni nú að ég ætlaði að koma á fimmtudaginn og eiga þannig að ég hefði ekkert við þennan tíma að gera hehe
annars ætlaði ég bara aðeins að láta vita af okkur... best að drífa sig í háttinn og ná smá svefni ef maður skildi nú fara af stað í nótt! (ægilega bjartsýn).
Góða nótt
02.09.07Jóhanna Björk Magnúsdóttir
...og enn gerist ekki neitt.
Þetta kríli ætlar að láta bíða smá eftir sér, hefur það frá pabba sínum en ekki mér, ég er alltaf stundvís!!![]()
annars held ég að það komi ekkert fyrr en 6.sept, þá hefði Jonni afi minn orðið 80 ára, Aron Gauti var skírður á þeim degi fyrir 10 árum og þá eru við Haffi líka búin að vera saman í 4 ár!!
hefði svosem ekkert á móti því ef það færi nú bara að koma samt... æj ég get svosem ekkert kvartað mér líður agalega vel og er bara eldhress![]()
nei...Jóhanna Björk Magnúsdóttir
...það er ekkert beibí komið enn!ekkert að frétta...Jóhanna Björk Magnúsdóttir
..af okkur hér!bara gjörsamlega ekkert að gerast. Bara að láta ykkur stuðningsmenn mína vita, verðið greinilega að hvetja mig aðeins meira áfram